miðvikudagur, apríl 27, 2005

pifff.....
so much to do but so little time...
Minn ekki-uppáhaldstími-ársins er runninn upp. Próflestur! Er búin að vera reyna troða einhverju mis skemmtilegu í kollinn sem virðist þessa dagana ekki vera neitt sérstaklega móttækilegur fyrir einhverjum nýjum upplýsinum. En þrjóskupúkinn ég gefst ekki upp, enda er þetta síðasta prófatörnin (vona ég) svo maður ætti að þrauka þessa daga sem eftir eru.

Til að leyfa ykkur að fá smá nasaþef af lærdómnum kemur smá fróðleikur.

Kúru var sjúkdómur sem var algegngur í Nýju Guineu á fyrri hluta þessara aldar og olli alvarlegum taugaeinkennum sem leiddu til dauða. Sjúkdómurinn smitaðist við það að konur og börn átu léttsoðna heila látinna ættmenna eða nudduðu þeim inn í hörund sitt til að öðlast visku þessara ættingja...

-Þessi fróðleiksmoli dagsins var í boði JK :)