föstudagur, maí 13, 2005

BÚIN!

Jæja prófin búin og vonandi er béessinn í höfn, mig grunar þó að ég verði ekki viðstödd í Egilshöllinni þann 25. júní n.k. sem útskriftarnemi. Þykir mjög líklegt að það verði tekinn einhver próflestur í sumarblíðunni í sumar, efnagreining er bara not my thing!
Oh well... þetta gæti verið verra.

Allavega er ein einkunn komin í hús og er ég bara nokkuð sátt með hana :o)


Síðan er stefnan bara sett á að hafa það gott og skemmtilegt um helgina og kíkja eitthvað aðeins út á meðal fólks. Enda er ég orðin nokkuð djammþyrst eftir þennan mánaðar djamm þurrk.

Skál!!!
JK