mánudagur, maí 02, 2005

Mikið renna þessir dagar saman í eitt þegar maður er í þessum próflestri. Í gær hefði allt eins getað verið þriðjudagskvöld en ekki laugardagskvöld, þvílík var stemmingin á bænum. Enda var gærkvöldinu eytt rólegheit og vídjógláp (svefn hjá sumum, *hóst*Dóra*hóst*) .
Ætlaði svo aldrei að geta drattast framúr í morgun því ég vissi að mín biði ekkert skemmtilegt í dag, hafði það þó að renna yfir smá efni...

En kominn háttatími og svo er það bara lærdómur brigth 'n' early 'n the morning og ætla ég að byrja daginn á að lesa um eitthvað sem kallast útskiptatöflur og DotPlots og á eftir því tekur við próteinaleit í gagnagrunnum! úúú... hljómar óneitanlega spennandi! Ekki satt?