þriðjudagur, maí 03, 2005

á morgun :o(

uss...
Held að þetta próf á morgun verið nú eitthvað big time flopp! huh... held ég gæti alveg eins farið og mætt í próf í einhverju allt öðru fagi og átt meiri líkur á að ná því...
Sjáum nú til, þau próf sem eru til dæmis í boði á morgun eru:
- Ritskýring nýja testamentsins (kemur alveg til greina)
- Loftnet og bylgjuútbreiðsla (hver kann það ekki)
- Trú og tákn (common sense)
- Hagstefna Evrópusambandsins (hljómar skemmtilega)

Jæja nú er bara að leggja höfuðið aðeins í bleyti og velja hvað maður mætir í á morgun í staðinn fyrir Líftæknilega örverufræði (sem er jú "skemmtilegast" af þessu öllu saman).