Þrauka þetta áfram.
Huh... enn í prófum.
Hef lítið látið í mér heyra síðustu daga þar sem ég hef verið með nefið ofan í skólabókunum, ýmist sofandi eða með hugann einhvers staðar allt annars staðar en við efnið. Svo tókst mér líka með minni einstöku snilli að crasha tölvunni eitthvað svo lítið hefur verið um net-surf, sem er í sjálfu sér gott mál því ég á að vera að læra.
Er annars komin með nett upp í kok af lærdómi sem hefur lýst sér í nokkuð miklum kæruleysisgangi varðandi lærdóminn núna síðustu daga. Sem er ekki nógu gott þar sem að ég á bara eitt próf eftir og er það í alveg uppáhaldsfaginu EFNAGREININGU. Grrr... I hate it!!!
Annars eru bara þrír dagar eftir af lærdómi í béessinn svo maður lætur sig nú hafa það.
Adjö
JK