Svo gaman...
YAHOOOO!!!!
Var að fá þær gleðifréttir í dag að ég muni bara MJÖG líklega verða ein af þeim sem mæta í Egilshöllina í júní sem útskrifarnemi úr HÍ og taka í spaðann á rektor! Einkunnin úr efnagreiningarviðbjóðnum var nefnilega að koma í hús og ég náði :-) Á reyndar eftir að fá út úr einu faginu en ég tel mig hafa verið nokkuð örugga að hafa náð því. Þannig ef það er ekki tilefni til að fagna um helgina þá veit ég ekki hvað.
Annars var ljómandi skemmtileg helgi að líða. Hafði upphaflega ætlað mér að hafa það rólegt heima og sofa eitthvað en plön geta breyst á bestu bæjum. Byrjaði helgina með Hjördísi á smá tjútti og stelpukvöldi, sem var mjög fínt. Laugardagskvöldið endaði líka allt öðruvísi en var ætlað og bara gaman því þar sem að mizz Ninnz kom í heimsókn og nenntum við ómögulega að vera eitthvað að hangsa heima á laugardagskvöldi að gera ekki neitt. Þannig að djammgallinn og forlát sólgleraugu voru dregin upp ásamt ýmsu drykkjum sem voru týndir til og endað þetta á alveg stórskemmtilegu kvöldi :-)
Segi bara lengi lifi the Buddettes ;-)