10 dagar!!!
Það styttist heldur betur í Londonförina :-)
Vííí.... hvað ég er farin að hlakka til. Get varla beðið eftir að fá að missa mig í búðunum og svo auðvitað að fá að berja U2 augum. Þetta verður eflaust ferð sem mun gleymast seint.
En þangað til ég fer verður lífið bara að ganga sinn vanagang. Vil samt varla trúa því að þurfa að vakna alla virka daga klukkan 7:15 þangað til ég veit ekki hvenær. Það verður allavega ekkert sumarfrí í sumar :-( en ég er varla sú eina sem verð frílaus svo ég ætti nú ekki að vera kvarta mikið.
En er farin að glápa á snilldarþættina LOST.
góðar stundir