Galtóm!
Í gær datt mér eitthvað voðalega sniðugt til að setja hér inn en kom mér ekki í það. Í dag er ég alveg þurrausin hugmyndum, og er þetta í þriðja sinn sem ég reyni að posta eitthvað hér inn. Kenni ég frekar leiðilegum degi í vinnunni um, þar sem ég gerði afskaplega lítið annað en að bíða eftir að klukkan yrði fjögur og komst því hugurinn aldrei á neitt flug, því mér leiddist svo, en sjáum hvað setur.
Fyrst vil ég þakka allar kveðjurnar sem ég er búin að fá! Takk fyrir :o)
Útskriftardagurinn var mjög fínn. Byrjaði reyndar á einhverri svaka umferðarteppu við Egilshöllina þar sem athöfnin átti að fara og fór reyndar fram. En maður lét nú ekki það á sig fá. Fór svo og sat þessa ágætis athöfn, tók við skírteininu og er ég nú officiallí Baccalaureus Scientiarum í líffræði. Eins spennandi og það nú hljómar ;) Svo var brunað í sveitina þar sem ýmsilegt góðgæti og hvítvín (handa Dóru) beið. Eftir að hafa heilsað upp á vini og kunningja og drukkið oggupínkupons vætvæn var svo brunað í bæinn með le buddettes og stefnan tekin á miðbæinn. Eftir smá detours hingað og þangað um borgina mættum við eldhressar á Hressó og má segja að ég hafi dansað af mér tærnar. Langt síðan ég hef dansað svona mikið á djamminu. Fínasta kvöld þetta.
Sunnudegi var svo eytt í afslappelsi og "þynnku"sund m Ninnz... það er fátt sem er betra en góð heitupottaferð eftir djammið, hvað þá þegar sólin gægist út um skýin og maður fær smá lit í leiðinni. Létum þó ekki bara sundið nægja og tókum þennan góða göngutúr um Grafarvoginn, komumst heilar og á höldnu heim þó að við höfðum nú ekki hugmynd um það á tímabili hvar í fjandanum við værum staddar.
Vikunni verður svo eytt í vinnunni... jei! Mikið guðslifandi langar mig í alvöru sumarfrí,svona holiday út á strönd í sólbaði með kokteil í hönd.
-Læt mig allavega dreyma um það ;-)