Þrír dagar!!!
Spennan magnast!
Greinilegt að þessi London-för er alveg highlight síðustu vikna hjá mér.
Allavega er róleg helgi að baki. Var bara að vinna á lau. og djö... var mikið að gera... össh... sáum fram á frekar rólegan laugardag á Dalveginum, en raunin var önnur. Hélt í alvörunni að það myndi bara líða yfir mig á kassanum, því hitastigið í búðinni var vel yfir tuttugu gráðurnar og búllan full af fólki. En harkaði þetta nú af mér og rumpaði þessu af :-)
Eftir frekar sveittann vinnudag var svo kíkt í útskriftarveislu hjá Katie-girl. Skvízan var að útskrifast sem viðskiptafræðingur og óska ég henni til hamó með það. Var nú vel veitt í veislunni og sá pabbi hennar alveg um það að enginn væri þyrstur, en mín var bara bílandi, en hefði nú alveg þegið eitt hvítvínsglas eða svo :o)
Annars er ég í smá vanda! Málið er að ég finn barasta ekki eina ferðatöskuna mína, sem er blá flugfreyjutaska. Finnst einhvernveginn að ég hafi lánað einhverjum hana, en er bara ekki alveg að muna það. Svo að ef einhver hefur upplýsingar um hvar taskan sér niðurkomin má sá gjarnan deila þeim info með mér.