Snilldin ein
Komin heim eftir hreint út sagt frábæra Londonför :o) Veðrið var alveg frábært, sól og hiti, reyndar kannski aðeins of heitt fyrir minn smekk, enda kom ég heim sólbrennd með rautt nef og rauðar axlir.
Kortin voru straujuð vel og vandlega og búðirnar á Oxford street og á fleiri stöðum skoðaðar. Kem þó ekki jafn hlaðin varningi eins og þær stöllur Ninnz og Dóra en eitthvað var þó í ferðatöskunni og var settur "warning-heavy" miði á hana, þegar heim var komið.
Síðast, en ekki síst voru U2 geðveikt góðir! Váts hvað þetta var allt saman flott og skemmtilegt. Doves og einhver London hljómsveit sem heitir Athlete hituðu upp og voru þeir líka góðir, en samt ekki nærri eins og U2! Stemmingin var alveg frábær, enda um 70 þúsund manns á vellinum svo það var kannski ekki von á öðru. Náðum við alveg fínasta stæði til að berja goðin augum og var Bono alveg í beinni sjónlínu ;o) fínt að fara á tónleika í UK þar sem Bretar eru kannski ekki þeir hávöxnustu svo maður sá alveg hreint ágætlega.
London (og vonandi U2 líka) verður sko heimsótt aftur!
adjö :)