þriðjudagur, júlí 05, 2005

Aðeins að stelast í vinnunni til að koma með nokkrar línur hingað inn ;-)

Helgin gjörsamlega flaug framhjá með tilheyrandi skemmtilegheitum.
Byrjaði nú samt reyndar á því að sofa af mér föstudagskvöldið, var eitthvað ógurlega tæjörd svo að ég missti hérumbil alveg af Live8 í hljómskálagarðinum, heyrði bara síðustu tónana inn um svefnherbergisgluggan. En oh well... lítill skaði skeður þar.

Var svo ögn líflegri á laugardagskvöldið, þrátt fyrir að þetta væri vinnuhelgi. Byrjaði kvöldið í grilli hjá Ninnz grillmaestro og svo var drukkið aðeins í kotinu og svo þrammað á Gaukinn á WIG WAM. Og VÁ! ég var sko ekki svikin. Mikið helv. var gaman :-) Þeir tóku alveg fullt af gömlum rokk slögurum með þessum gömlu böndum eins og AC/DC, Maiden og fleirum... Ég og Ninnz tróðum okkur í þvöguna og vorum heldur betur tuskulegar þegar tónleikarnir voru búnir en hvað um það þetta var alveg frábært! :)

en þarf að halda áfram að vinna :-/
blæjó