mánudagur, júlí 25, 2005

Dánarfregnir og jarðafarir

Elskulegt sjónvarp mitt, hr. THOMSON, lést í gær.

Ofbauð greyinu svona vitleysan í The Newlyweds að það bara ákvað að hætta þessari vitleysu og yfirgaf þennan heim. Síðustu andartökin voru mjög tregafull og trúði ég því ekki að það væri að gefa upp öndina. En allt kom fyrir ekki og eftir að skjárinn varð svartur kom einhver smellur og svo brunafýla... *grát-grát*

Vil ég bara þakka THOMSON sambúðina síðustu þrjú ár.

Útför verður auglýst síðar
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.