Trúi því ekki...
... að ég þurfi að hangsa inni, enn einn góðviðrisdaginn. Og þar að auki verða ég að vinna til sjö þannig möguleikinn á að fara eitthvað út í góða veðrið er enginn. Frekar leiðinlegt þar sem það er ekkert að gera í vinnunni, en maður verður víst að vera hér. Ömurlegt. Til marks um það að ekkert er að gera, sá ég að stúdentspróf og þriggja ára háskólanám kom sér alveg ótrúlega vel í gær, fékk nefnilega það verkefni að mata pappírstætara... jebbs you heard me right... ég var að tæta pappír. Mjög svo highly educated job það og var ég að spá hvort ég ætti að fara heim og ná í stúdentshúfuna og næluna frá HÍ til að fólk myndi nú sjá að ég hefði nú alveg menntunina í að gera þetta. Enda vita allir hversu flókið og mjög svo nákvæmt starf það er að mata pappírstætara og tæma. Held að dagurinn í dag verði engu skárri...
Ég vildi ég væri út í sólinni :-(
Ég vildi ég væri út í sólinni :-(
