föstudagur, ágúst 19, 2005

Alveg dead in the head þessa dagana.

Oft er mér búið að detta eitthvað sniðugt til að setja hér inn, en þegar ég kemst svo í tölvu og ætla að fara skrifa þá bara blúbbs... allt horfið.

Síðustu dagar búnir að vera frekar rólegir hjá mér. Hef bara verið að hangsa heima og hafa það rólegt, sem er svosem ekkert slæmt.

Skellti mér samt í sund í gær, í þeim tilgangi að fá mér smá sprett og oggupons lit á kroppinn. Gerði heiðarlega tilraun til þess að synda en hún fór nokkurn veginn út um þúfur. Fór nokkrar ferðir í átt að 1000 metrunum en þegar vel á veg var komið var skapið ekki alveg nógu gott. Sökudólgarnir að því voru þau gamalmenni sem voru í lauginni í "sama tilgangi" og ég, að "synda". En stundum er eins og þau bara haldi að þau eigi fja$#%&$ laugina og eru þarna í rólegheitunum að synda sitt baksund (og þá syndandi á mann í leiðinni) og gera sína vatnsleikfimi í miðri laug. Veit ég ekki hvað oft ég þurfti að stoppa, sveigja og beygja og á endanum var þolinmæðin farin. Gafst því upp á heilsuræktinni þann daginn og skundaði í pottinn vel pirruð með eyrun full af vatni eftir allar tilfæringarnar. Þegar ég var svo búin að vera þar í smá tíma kemur líka þessi fjöldi af sundæfingarkrökkum sem settust liggur við í fangið á mér. Hraktist ég því úr pottinum og ákvað bara að skella mér í heita sturtu. En þegar komið er í klefann eru þessir baðverðir búnir að spúla allt gólfið með ÍSKÖLDU vatni svo maður þurfti að tipla þetta á tánum.. brr.... Þoli reyndar ekki þegar maður er í búningsklefanum og þeir, eða þær réttara sagt, þurfa alltaf að vera buna þessu ískalda vatni út um allt þegar maður stendur þarna að reyna þurrka sér, berrössuð og berskjölduð... hnuss....
En já... semsagt, frekar misheppnuð sundferð, svo ekki sé meira sagt.

Svo er stefnan bara sett á menningarnótt á laugardaginn... vei vei vei...
Sjáumst vonandi þar!