miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Loftlúður !!!

Kominn miðvikudagur, sem þýðir bara að vinnuvikan sé hálfnuð. Vííí... Frekar rólegt eitthvað í vinnunni þessa dagana, sem er svosem allt í lagi.

Menningarnótt er liðin, eða öllu heldur ómenningarnótt. Sleppti öllu menningarlegu stússi þetta árið og sat bara í góðum félagsskap í kotinu við drykkju og slúður meðan á tónleikunum og flugeldasýningu stóð. Enda var alveg ljómandi útsýni af svölunum hjá mér svo maður þurfti ekkert fara út til að hundblotna til að sjá nokkrar rakettur. Skunduðum svo í bæinn, eða stálumst öllu heldur með einhverjum leigubíl sem einhverjir aðrir höfðu pantað... múhahaha... Skemmti ég mér alveg ljómandi vel og einkenndist kvöldið af mörgum litlum skemmtilegum atvikum. Ninnz og ég sáum um það að dansa og húka á barnum, meðan aðrar tóku einhverja útlendinga upp á arminn og voru á góðri leið að hitta einhverjar Hollywood stjörnur, eða gott sem.... ;o) Er leið á nóttina tvístraðist hópurinn eitthvað, eins og gerist og gengur og trítlaðí ég bara heim á leið. Hitti svo á leiðinni heim einhverja tvo Svía sem voru eitthvað lost og voru að reyna að komast á Hótel Loftlúður og skildu ekkert í því af hverju þeir gætu ekki fengið taxa... (I wonder why). En þar sem ég er vel upp alin sveitastúlka guidaði ég þeim í áttina að hótel Loftleiðum... og svo bara heim í undir hlýja sæng. Fínasta kvöld alveg.

Næstu daga mun líf mitt svo einkennast af pappakössum. Þarf að fara pakka niður þeim tveim árum sem ég er búin að vera á Eggertz og finna mér einhvern nýjan stað til að eyða næstu árum. Þessi tvö ár eru barasta búin að vera hin ágætustu, á alveg fullt af góðum og skemmtilegum minningum af þessum stað. Læt ykkur svo bara vita hvenær það verður næst partý í kotinu hjá Katrínu. Sem stendur er ég ekki komin með neinn framtíðarstað, verð bara að níðast á ættingjum og vinum þangað til. En ég hef eitthvað voða litlar áhyggjur af þessu, hef á tilfinningunni að þetta reddast einhvern veginn... Kannski maður fari bara í það um helgina að finna sér kærasta sem maður getur bara flutt inná og þurfi ekkert að hafa áhyggjur af húsnæðismálum neitt meir, hahahaha... Held samt að það sé nokkuð tæpt, en maður veit þó aldrei ;o)

En ef einhverjum finnst gaman að pakka og þrífa íbúðir, endilega láta mig vita ;-)