Með tuskuna á lofti
Held ég sé komin með ofnæmi fyrir tuskum og gúmmíhönzkum. Búin að vera þrífa kotið eftir flutningana á sunnudagsmorguninn. Jebbs you heard me flutningar á sunnudagsmorgun. Haldiði að gamla settið hafi ekki bara verið mætt hér í bítið á sunnudagsmorguninn, klukkan níu, til að flytja búslóðina mína. Ég rétt náði að koma mér á lappir til þess, enda búin að vera í þessu fína afmæli hjá henni Önnu kvöldið áður og gerði þar bollunni kannski eiliítið of góð skil, en gaman var það engu að síður. Allavega hafði ég mig í það að bera nokkra kassa út, hálf máttlaus og rauðeygð og enda var ennþá nótt á mínum mælikvarða 0g örugglega annarra nágranna minna. Þannig að núna er kotið bara tómt og ekkert eftir nema einhver rykkorn.
Nýja heimilið mitt er ekki ennþá fundið, kærastaleitin yfir helgina bar því miður engan árangur svo ekki get ég verið hjá neinum kærasta, svo að sem stendur "bý" ég í bílnum. Mjög spennandi. Þarf þó ekki að sofa í honum þar sem ég góða vini sem leyfa mér að krasha hjá þeim. Þakka ykkur fyrir esskurnar mínar :)
En vinnudagurinn er búin, farin að skúra skrúbb' og bóna....