Versló búin þetta árið. Var helgin bara hin fínasta og var hátíðin "afmæli-2005" hin fínasta. Rúllaði á Flúðir á föstudagskvöldinu í afmæli til Maríu skvíz og var það voða fínt. Kíktum svo á ekta sveitaball á Útlaganum, í frekar sveitta stemmingu, fullt af slagsmálum og brotnar tennur. Svona rétt eins og sveitaböll geta orðið.
Laugardagurinn var frekar þreyttur eitthvað og geispaði ég mig í gegnum vinnudag í vínbúðinni. Tallaði svo og tjúttaði í afmæli hjá Dóru skvíz um kvöldið og var það helv. mikið fjör og nóg drukkið og haft gaman af. Því miður áttu sumir (*hóst-Dóra-hóst*) við einhvern heilsubrest að stríða og gátu því ekki verið með í fjörinu down-town... en við bara bætum úr því seinna.
Annars kíkti ég aðeins í búð í gær, til að kaupa sjampó og svoleiðis til að hafa lokkana hreina og fína. Nema hvað að ég fer og skoða hvað sé til, og við hliðina á mér stendur maður sem er að
skoða þetta allt saman voðalega mikið. Svo spyr hann mig á ensku hvort að það sé sjampó sem hann sé með í höndunum. Ég svaraði manninum nátturulega og svo spyr hann mig hvort ég hafi nokkuð prófað þessa tegund sem hann var með, ég hafði ekki gert það og hélt bara áfram að skoða það sem ég ætlaði að kaupa... þá fer kallinn að spurja mig aftur hvort að ég viti hvort að þetta sé eitthvað góð tegund og fer eitthvað að þefa af brúsanum, hafði ég ekki hugmynd um það... og fannst þetta soldið skrítið að einhver kall fari að spurja mann voðalega mikið út í eitthvað sjampó. En svo fer gaurinn bara með brúsana sem hann hafði verið að skoða... en það var ekki fyrr en þá sem ég fattaði að hann var SKÖLLÓTTUR!
-Til hvers þurfti hann eiginlega að vera spurja mig svona mikið út í eitthvað sjampó þegar hann hefur ekkert hár!?!?
En eníhú...
vinnan bíður.