Fyrsti í sprikli!
Stóri dagurinn í dag. Fyrsti dagurinn í heilsuræktarátaki var að renna upp. Búin að skrá mig og borga námskeið þannig það skal tekið á því. Mun þó ekki lofa neinum afrekum, en allt sem fer í burtu verður til bóta ;o) Fór svo í gær til að versla mér outfit (eða allaveg hluta af því) fyrir átökin og mikið djö... er þetta dýrt dæmi. Ætlaði upphaflega að kaupa mér buxur, skó og fleira en þegar ég komst að því hvað þetta myndi allt saman kosta var ákveðið að setja skóna á bið. Veskið leyfir bara ekki meira!
Mikið finnst mér annars leiðinlegt að fara í mátunarklefa í sumum búðum. Lenti nefnilega í einum leiðinlegum í þessum verslunarleiðangri. Ég er nú kannski ekki sú lægsta í loftinu, en ekki sú hæsta heldur en mikið þoli ég ekki mátunarklefa sem hafa bara svona "hálfa" hurð, þannig að þegar maður stendur uppréttur í þeim blasir maður hérumbil fyrir allri búðinni og sér þar af leiðandi yfir alla búðina í leiðinni, glatað alveg hreint!!! Sér í lagi þegar maður er að kaupa sér flíkur sem krefjast þess að maður þarf að afklæðast nokkuð vel til að máta þær... Liggur við að maður standi hálf berrasaður inní miðri búð, því þessir klefar eru oft á alveg fáránlegustu stöðum. Ekki alveg það sem maður er að leitast eftir.
Er enn í húsnæðisleit! Þetta fólk sem maður reynir/hefur samband við, er svo bara ekkert að svara manni hvort að pleisin séu laus eða ekki. Gífurlega pirrandi. Er því nærri flutt í sveitina því þessa dagana er ég í góðu yfirlæti hjá ömmu Lú! Alltaf gott að eiga góðar ömmur :-)