miðvikudagur, september 21, 2005

Klukkuð!

Búið að klukka mig tvisvar svo ætli það sé ekki betra að play along.
Fimm gagnslausar upplýsingar um mig

1) Verð örugglega seint kölluð stundvís manneskja. Ég og klukkur eigum bara ekki samleið, vantar alveg "tímaskynsgenið" í mig. Betra er seint en aldrei...

2) Finnst voða gott að borða góðan mat, þó ég borði ekki jarðaber, banana, ananas, vínber, osta, rækjur, skelfisk, ólívur, tómata, gúrkur.... og ég gæti haldið lengi áfram.

3) Er örvhent og nota studum gleraugu. Sumum finnst það vera fötlun, öðrum ekki. Mér finnst það bera vott um snilligáfu, er það ekki ;-)

4) Kann að skipta um dekk ;)

5) Er með eitthvað sem kallast kuldaofnæmi og bý á Íslandi!


Jæja... þar hafið þið það
Ég ætla leika með og klukka Hafdísi, Maríu og Louie.

Leiter!