föstudagur, september 30, 2005

Án titils

Úff... orðið töluvert langt síðan ég hef skrifað eitthvað hér inn. Reyndar ekki mikið sem hægt er að update-a fólk um. Bý enn hjá henni ömmu Lú og gengur sambúðin bara vel, enda kannski ekki við öðru að búast því amma stakk af til spánar og ég var bara ein í kotinu. Er samt orðin soldið leið á því að fara snemma á fætur og bruna yfir fjallið í vinnunna, sérstaklega núna þegar farið er að snjóa og svoleiðis "skemmtilegheit" farin láta sjá sig. En er þó búin að skella vetrardekkjunum undir Skranserinn og er því öllu viðbúin, svo bara vetur here i come... ho ho ho.... Verð nú samt að fara drífa mig í því að finna eitthvað pleis hér í borginni, svo maður geti farið að stunda félagslífið af einhverju viti.

Helgin er svotil óráðin. Hugsa þó að maður fá sér eins og eitt vínglas eða svo, langar það allavega. Á að minnsta kosti nóg til af búsi svo það er bara spurning um að fara nýta það eitthvað, svona áður en það skemmist! Er einhver geim ? :o)