þriðjudagur, október 18, 2005

Stund milli stríða....


Löngu kominn tími á nýja færslu hér inn og af því tilefni hef ég tekið af mér gulu latexhanzkana og rannsóknarsloppin og læt öll lífsýni eiga sig á meðan. Hef allavega haft nóg að gera í vinnunni upp á síðkastið svo dagarnir hafa verið fljótir að líða, en eitthvað rólegra er í dag svo maður hefur gert lítið annað en að hangsa, surfa á netinu og eitthvað fleira ógagnlegt. Þetta hlýtur samt að vera lognið á undan storminum þar sem að flensu sessionið fer að bresta á og þá verður víst "fjör". Þá fær maður víst nóg af hori og öðru skemmtilegu til að skoða, daginn út og inn.

Fyrir utan vinnu hefur svo líka verið nóg að gera. Er enn á sprikl-námskeiðinu í hreyfingu og nýt þess að baða skönkum mínum þar út og standa í þeirri trú að jafnvel eigi einhver kíló eftir að fjúka. Hef nú reyndar ekki séð neinn gríðarlegan árangur af kroppaskakinu enn sem komið er, en gerast ekki góðir hlutir hægt ;) ?

Humm.... hvað get ég nú sagt fleira... Jú, ég var að eignast litla frænku í dag. Býð ég hana velkomna í heiminn :)

Svo er nóg að gerast framundan, Ninnz að útskrifast, afmæli og fleiri afmæli... Og var svo að heyra að útskrifaðir líffræðingar ætluðu meir að segja að hafa kræklingakvöld sem er hreint ekki leiðinlegt, sælla minninga ;)

En nóg af þvaðri í bili... lofa að vera duglegri næst... kannski.... ;)