Enn ein vaktin...
..sem ég hangsa hér í vinnunni og það er ekkert að gera. Eina sem ég hef gert er að svara í símann, öllum þessum þrem símtölum á jafnmörgum tímum. Úff.. erfitt haaa.... Veit bara ekki hvað ég væri ef ég væri ekki með netið og msn. Væri sjálfsagt ráfandi hér um gangana, talandi við sjálfa mig og farin að ímynda mér að það væru fleiri en ég hér, nei... segi nú bara svona, er ekki alveg svo rugluð -eða það vona ég nú allavega.
Annars er bara lítið að frétta hjá mér. Maður virðist gera lítið annað en að fara í vinnuna, kíkja í ræktina og keyra á milli. Frekar ófjölbreytt eitthvað og dagarnir hver öðrum eins. Ótrúlegt hvað lífið hjá manni er eitthvað fljótt að fara í einhverja leiðinda rútínu þegar maður klárar skólann. Allir dagar eins, eða gott sem. Samt fegin að þurfa ekki að vera í skóla núna, væri sjálfsagt komin í jólaprófastressið og á fullu í verkefnavinnu, eitthvað sem ég sakna ekkert voðalega mikið. Það getur víst líka verið ljúft að vera í þessari "vinnu-rútínu".
Ætla halda áfram að láta mér leiðast hérna, hafði það gott á meðan!