laugardagur, nóvember 05, 2005

Rólegheit...

Er ein í vinnunni á laugardegi og hef ekkert að gera, svo ég ákvað að svara þessu xtra-klukki frá Hrönnslu.

núverandi tími: 11:00
núverandi föt: gallabuxur, peysa, flíspeysa og trefill, á að vera í hvítum rannsóknarslopp og í hvítum hrikalega ljótum buxum en mér er kalt... brr....
núverandi skap: Bara fínt, nenni þó ekki að vera hér (er sko í vinnunni).
núverandi hár: Dökkt, meðalsítt og krullað
núverandi pirringur: Hvað mér er kalt
núverandi lykt: Light Blue frá D&C
núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Þrífa eitthvað dót
núverandi skartgripir: Enginn, má ekki vera með neitt solleiðis í vinnunni, safnar bara í sig sýklum, vil nú ekki hafa of mikið af þeim.
núverandi áhyggja: Að ég eigi eftir að klúðra einhverju hér í dag, vona bara það besta :)
núverandi löngun: Fara að sofa... að þurfa vakna kl 7 á laugardagsmorgni ætti að vera lögbrot.
núverandi ósk: Á ég að byrja núna.... allt of margar til að komast fyrir hér
núverandi farði: Klíndi á mig maskara í morgun, veit nú ekki hvort mikið sé eftir af honum. Var ekki nógu vel vöknuð til að setja á mig einhvern farða í morgun.
núverandi eftirsjá: humm.... á maður nokkuð að vera sjá eftir hlutunum, það sem er liðið er búið og gert.
núverandi vonbrigði: humm....
núverandi skemmtun: Góður dinner í kvöld og bíó, hver veit svo hvað kvöldið ber í skauti sér ? núverandi ást: nah.... geymi þessa
núverandi staður: Vinnan... vei...
núverandi bók: Les alveg afskaplega lítið
núverandi bíómynd: None
núverandi íþrótt: Ræktin, sprikla þar eitthvað þar þegar ég nenni
núverandi tónlist: Eitthvað FM gaul er þó að íhuga að skipta yfir á X-FM líkar það mun betur.
núverandi lag á heilanum: Eitthvað lag með black eyed peas, veit bara ekkert hvað það heitir
núverandi blótsyrði: piff.... þó eru þónokkur
núverandi msn manneskjur: Frk. Ninnz
núverandi desktop mynd: engin, bara blár skjár...
núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Hafa það gott
núverandi manneskja sem ég er að forðast: Hef lært það að ef maður er að forðast einhvern þá gerir maður ekkert annað en að vrea rekast á þá manneskju. Svo ég forðast ekki neinn
núverandi dót á veggnum: Allt of mikið af dóti...

jæja.... þá er það komið! Ef ég á að klukka einhvern áfram ætla ég að klukka, Hafdísi, Dóru og Hjördísi.