mánudagur, desember 19, 2005

Alveg að bresta á

Jólin bara eftir 5 daga!!!
Mikið skelfilega líður þetta hratt.

Annað sem skelfir mig er það að eftir 18 daga verð ég ekki lengur töttögöfemm... Er er að verða TUTTUGUOGSEXÁRA... sji... Mér bara líst ekkert á þetta. Finnst ég hafa voða lítið gert á þessum 25 árum, nema jú náði mér í þessa háskólagráðu svo það er allavega búið og gert. Aðrir hlutir sitja bara enn á hakanum. Og svo það sem meira er til marks um það að ég er orðin gömul er það að skólafélagi "litla" bróður míns hélt að ég væri mamma hans!! Ok væri í lagi ef litli bróðir væri átta ára, en krílið er víst orðið 14. Mér er ekki skemmt. Held ég kjósi bara að vera tuttugu og fimm + eftir daginn mikla, sama Katrín, bara ári eldri..... er það ekki bara miklu betra ;)

hó hó hó...