Míní annáll
Árið 2006 er víst komið og gott betur... dagur fimm á árinu.
2005 kom og fór. Ágætis ár bara, er alveg sátt svosem. Þegar ég hugsa til baka þá gerðist kannski ekki mjög mikið á árinu. En það sem stendur uppúr er:
- Útskriftin úr HÍ. Get kallast fræðingur núna, þó að ég sé nú ekki endilega viss um að ég standi alveg undir nafni í því... eeen hvað um það. Allavega var þetta eftirminnilegur dagur (og kvöld) ;) Nóg af hvítvíni, drama og öllu því sem fylgir ;) Verður geymt en ekki gleymt :)
- Ferðin til London. Skrapp með Hafdísi í verlsunar- og tónleikaferð. Lentum í þvílíku sólstrandarverðri í stórborginni, um 30°C stiga hiti, bjáluð sól og logn. Vorum samt duglegar að strauja kortin, þó að það hefði alveg getað verið meira, maður nennir bara ekki að hangsa í búðum í brakandi blíðu. Fékk svo loksins að berja U2 augum eftir að hafa svo eftirminnilega "rétt misst af þeim" í Dublin um árið. Alveg magnaðir tónleikar :)
- Flutningar af Eggertz og til ömmu Lú. Fyrst að ég kláraði skólann þá at ég víst ekki verið lengur á stúdentagörðunum og þurfti að fara þaðan. Á alveg fullt fullt af góðum minningum úr kotinu mínu þar og sakna ég þess hálfpartinn að vera ekki þar lengur. Enda er það alveg sérlega hentug staðsetning ef skella á sér í bæinn.
- Svo er það fullt fullt fleira sem ég gæti talið upp, hætti að vinna í ríkinu -loksins, átti skemmtilegt sumar, djammaði fullt, kíkti á Wig Wam tónleika (sem voru bara þræl skemmtilegir) tjúttaði á menningarnótt, Clintwood ;), kíkti á Hafnardaga í Þolló-city, fór í fullt fullt af afmælisveislu, verslóhelgin -afmæli 2005-, öll þynnkusundin með Ninnz... Svo gæti ég haldið lengi áfram.
Vona bara að árið 2006 verði bara enn betra :)
Svo hljómar stjörnuspáin mín fyrir árið svona:
Þar sem þú ert fædd/ur á myrkustu dögum vetrar þarfnast þú sólarljóssins í ríkum mæli og leitar þar af leiðandi uppi félagsskap fólks sem er jákvætt, uppbyggjandi og ástríkt. En Satúrnus áhrifastjarna þín eflir þig þegar þú lítur í kringum þig árið framundan. Þú hreinsar til á tilfinningasviðinu, skoðar hvar ótti þinn leynist eða höfnunin, afneitunin, gagnrýnin og dómharkan sem beinist jafnvel að þér sjálfri/sjálfum. Þú stígur dansinn í mars og þér líður vel, áhrifastjarna þín, Satúrnus, sér til þess.