Er ekki kominn....
tími til að skella nokkrum línum hér inn ?
-Ég held það!
Nóg er búið að gerast síðan síðast. Búin að halda smá uppá ammælið, og hafa þessir dagar sem 25+ verið alveg ágætir. Er ekki enn farin að finna fyrir aldrinum, þó að mér finnist ég vera orðin ískyggilega gömul eitthvað. Ekki alveg nógu sátt þetta. Er eitthvað alveg lost í lífinu þessa dagana. Veit bara ekkert hvað ég á af mér að gera. Hlutirnir virðast einhvern veginn vera fastir í sama farinu, og finnst mér bara allt vera eins og fyrir nokkrum árum síðan. Ekkert virðist hafa breyst! -Þannig séð. Get víst samt engum kennt nema mér sjálfri og þarf bara að gera eitthvað í mínum málum. Vandinn er bara sá að ég veit ekki hvað ég á að gera. Á maður að fara setjast aftur á skólabekk og "njóta" námsmannalífsins, eða halda áfram í þeirri vinnu sem ég er í, eða finna einhverja nýja vinnu og vera aftur komin á hálfgerðan byrjunarreit!?!?! eða... eða... eða.... úff... Væri samt alveg til í að fara bara eitthvað til útlanda og ferðast og gera eitthvað spennandi. Enda kjörinn tími til þess, maður er engum háður, engin börn eða neitt svoleiðis. Vantar bara smá pening, fer bara að spara.. :)
Any suggestions ?