fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Sit hér...

ein á vaktinni. Er samt alveg að verða búin. Get bara ekki beðið eftir að komast heim klessa mér í sófann og gera absúlútlí nothing, svo eru Desperate Housevifes í kvöld, ekki leiðinlegt.

Annars er lítð af mér af frétta. Hef verið einstaklega seinheppin þessa vikuna, sem er svosem ekkert nýtt. Fyrir viku síðan tókst mér að brjóta bíllyklana mína hér í Reykjavíkinni og komst því ekki lönd né strönd. Aukalyklarnir í Þolló citý svo það var lítið hægt að gera. Komst þó í citýið um kvöldið og fékk far í vinnuna daginn eftir. Hélt svo alla helgina að helmingurinn sem brotaði af væri í skránni og lét því alla farþega mína yfir helgina sjá um að opna og læsa skranser. Á mánudaginn finn ég svo hinn helminginn -hjúkk. Svo að skráin var lykla-free... sem betur fer, enda sá ég fram á einhvern óþarfa kostnað við að laga þetta.

Í gær var svo verið að kenna mér eitt nýtt hér í vinnunni og fólst einn hluti verksins að vinna við UV-ljós. Ég fylgdist nátturlega samviskusamlega með því sem var gert og prófaði að gera þetta sjálf og var að bogra eitthvað yfir þessu ljósi í smá tíma. Nema hvað að ég þurfti auðvitað að brenna í andlitinu við þetta. Leit út í gær eins og eitthvað freak í gær. Hálft andlitið var ELDRAUTT, en ég var svo klár að vera með hlífðargleraugu svo að ég brann ekkert þar sem þau voru, en aðrir hlutar andlitsins eru frekar rauðir. Lít því frekar hálfvitalega út núna.. með andlitið tvílitt, rautt og svo "hvítt". Frábært alveg hreint. Hef forðast að vera eitthvað á almannafæri í dag og ef þess hefur þurft á er það bara talibana-lookið, trefill uppfyrir nef. Glæsilegt! Vona samt að þetta fari að lagast og hefur Aloe Vera kremtúpan verið my best friend í dag.

Já, semsagt allt eins og "best" verður á kosið!