Kominn...
miðvikudagur og mánudagsmórallinn að baki.
Mæ ó mæ... Mikið ætlar maður seint að læra. Magnað alveg hvað maður fær "góðar" hugmyndir svona eftir nokkur glös.... En nóg um það.
Skemmti ég mér bara þrælvel á laugardaginn. WigWam sviku ekki, þó að stemmingin hafi nú samt verið meiri á gauknum í sumar, þá var þetta fínasta gigg hjá þeim. Dansaði og söng með eins og mér einni er lagið og gekk mér meira svo vel að ég týndi röddinni einhvers staðar down-town. En hún kom þó fljótt og örugglega í leitirnar eftir smá hvísl-æfingar á sunnudeginum.
Hugsa svo bara að ég taki því rólega um helgina. Allavega engin plön í gangi enn sem komið er, en er opin fyrir öllu ;o)