fimmtudagur, apríl 06, 2006

Er farin að halda það að svona átta til fjögurfimmsexsjöátta vinna sé ekkert allt of góð fyrir mann. Dagarnir eru hver öðrum eins, vikan líður hjá eins og elding og andleysið er algert. Mér dettur ekkert í hug til að skrifa hér inn, eða gera bara eitthvað yfir höfuð, fer bara heim eftir vinnu og geri ekkert! Er eins og ég sé komið á eitthvað svona stig þar sem mér er bara sama um flest og nenni engu. Ekki alveg nógu gott finnst mér. Verð að fara gera eitthvað í 'essu.

Er annars bara í vinnuni, en ekki hvað. Sit hér ein á vakt og glápi út í loftið og geispa, einstaklega uppörvandi og skemmtileg!

úff... skrifa eitthvað síðar þegar ég hef eitthvað "merkilegra" að segja.

P.S. Ég komst því miður ekki í prufurnar í gær fyrir RockStar-Supernova. Svo sorry folks, Tommy Lee fær því miður ekki að njóta einstakra sönghæfileika minna, but that's life! Better luck nxt time Tommy! :o)