GLEÐILEGT SUMAR
Jæja, sumarið loksins "komið" eða svona offísjallí á dagatalinu. Fannst nú ekki vera voða sumarlegt þegar ég brunaði á skransernum í vinnuna í snjó og slabbi í morgun, reyndar var þetta á Mt. Hellisheiði/Þrengsli, og þó... það var líka smá snjór í Þolló-city. Svo tók þessi fína sól á móti mér þegar ég kom í RVK þannig ég "ákvað" bara að halda mig innandyra í dag. Núna langar alveg óstjórnlega mikið að kíkja í sund og liggja í heita pottinum, en nei... vinnan skal það vera í dag. En stefni allavega á það að eyða sumrinu eitthvað að sóla mig og gera eitthvað fleira skemmtilegt... kemur bara í ljós síðar hvað það mun verða.
Segi bara Gleðilegt Sumar gott fólk!
