laugardagur, maí 20, 2006

Júródagur # 2


Júródagur númer tvö runnin upp. Engin Sylvía verður víst með í Eurovision, en hvað með það, það skiptir ekki öllu. Hefði samt verið gaman að hafa hana með, en maður finnur bara einhvern annan til að halda með. Júródagur #1 var samt fínn. Brunaði á Selfoss í grill og bjór til sys.... umm... hvað grillmatur er góður og bjórinn líka ;o) sluuurp!

Er búin að eyða deginum í vinnunni. Yeah! Ekkert að gera og msn-ið heldur í manni lífi. Verð allavega ekki útkeyrð eftir vinnuna í kvöld (7-9-13) sem er gott. Bjórinn og annað bús er komið í kæli svo það er bara að bíða eftir að klukkan slái fjögur svo maður geti fengið sér smá bjútíslíp fyrir kvöldið, enda veitir ekki af. Ljótan hefur eitthvað látið á sér kræla í dag, er ekki alveg sátt við það, en það er allavega gott að ég er bara ein hér í vinnunni, reyni bara að gera gott úr 'essu. Vona bara að það komi ekkert margir gæjar hingað í dag, einn hefur látið sjá sig hér það sem af er degi og það er meira en nóg þegar bjútí-lookið er víðs fjarri.

P.s. Af því erum ekki með í júró verður lag dagsins Barfly með Jeff Who. Frábært feel-good lag! Klikkar ekki.