upphitunin...
fyrir Krítarferðina hófst í gær. Átti líka þennan fína dag í Bláa lóninu með Ninnz, þar sem við nutum sólarinnar og "náttúrufegurðarinnar" í lóninu (maður fær sko sjaldan nóg af fallegum karlmönnum) og var það hreint ekki slæm viðvera þar. Svo var kíkt í dinner og bíó síðar um kvöldið. Tom Cruise í Hlutverki Ethan Hunt í MI3 varð fyrir valinu (hann er nú ekkert ómyndarlegur heldur) og var það fínasta ræma alveg hreint. Alltaf gaman að sjá hvað Bandaríkjamenn eru nú duglegir við að bjarga heiminum á svo auðveldan hátt, verst að þeir geta það víst ekki alveg nógu vel in real life og ef þeir gera það er það þá venjulega á einhvern fals hátt, en nóg um það, ætla ekki að vera tjá mig um eitthvað sem ég veit ekki né skil.
Hef svo bara haldið mig innandyra það er af er degi. Er á vaktinni svo sólin er ekki í boði fyrr en eftir fjögur og þá verður það bara bikiní og sund.
Lovely
Hef svo bara haldið mig innandyra það er af er degi. Er á vaktinni svo sólin er ekki í boði fyrr en eftir fjögur og þá verður það bara bikiní og sund.
Lovely
