föstudagur, júní 16, 2006

Drög að sjálfsmorði

Ákvað í gær að skella mér loksins í ræktina eftir góða pásu. Er búin að vera frekar lélega að mæta undanfarið, búið að vera nóg að gera í vinnu og social lífi. En allavega þá fór ég í einn góðan púltíma sem ég hef oft farið í áður og alveg sloppið ósködduð út úr því. Svo í gær þá var annar kennari með tímann, ég hugsaði bara o jæja... þetta verður örugglega bara fínt, smá tilbreyting frá hinu. En boy ó boy, I was wrong. Við vorum sko alveg látin taka vel á því og mikið meira en það. Ég hélt á tímabili að ég myndi bara enda örend á gólfinu, lærin voru við það að gefa sig, hristust og skulfu, var orðin vel rauð í framan og svitinn lak alveg af manni. En þrjóskan hafði yfirhöndina og ég komst í gegnum þetta. Þegar tíminn var búinn staulaðist ég út úr ræktini eins og gamalmenni.

Líðanin í morgun var nokkuð betri en eftir tímann. Með smá lagni tókst mér að velta mér fram úr bælinu, ef það væri til þá hefði þurft að gera hjartahnoð á lærunum á mér, þau voru ekki alveg reddí í þau átök sem þarf til að koma sér framúr.... Mæ ó mæ...

Geng svo um eins og hálfgerður spýtukall hér í vinnunni, mer harðsperrur alls staðar. Er samt að lagast -vona ég! Eitt er nokkuð víst að það verður sko farið í heita pottinn eftir vinnu.

En... ég ætla láta á það reyna að fara aftur í ræktina í næstu viku. Gefst ekki svo "auðveldlega" upp!!!

Svo eru bara 10 dagar í Krít! :o)