Er alveg komin með nóg...
..af þessari rigningu alltaf. Sumarið virðist bara ekkert ætla að koma þetta árið. Held maður geti bara pakkað niður sandölunum og sumarfötunum í kassa og tekið upp húfur, trefla og moonboots, hæfir veðrinu miklu betur. En ætli það komi ekki einhver rjómablíða þegar maður fer til Krítar, er alveg viss um það. En maður verður allavega í góða veðrinu þar í einhverja daga, get bara ekki beðið, fyrst og fremst að vera komin í frí frá vinnunni og að komast í eitthvað betra veður. Bara 11 dagar :o)
Let the sunshine
Let the sunshine in
The sunshine in....
