Aftur á klakanum
Jæja, skvísan er komin heim á klakann úr sólinni á Krít. Tilbreytingasnauður hversdagsleikinn og vinnan í allri sinni dýrð er tekin við. Verð nú að viðurkenna að það var soldið skrítið að fara í hvíta outfittið í vinnunni eftir að hafa spókað sig um á bikiní eða pilsi í 2 vikur. Væri sko alveg til í að fara aftur. Ferðin var allavega alveg frábær. Legið í sólbaði, túristast um eynna, og bara haft það gott. Mæli ég alveg með því að fólk heimsæki þennan stað.
Takmarki ferðarinnar var náð, fékk meiri lit en í útskriftarferðinni “00 til Mallorca J. Fólki þótti við víst vera eitthvað fölleitar þegar við komum úr þeirri ferð (skil það barasta ekki). Ástæðan fyrir því var víst mikið djamm á okkur en það fór eitthvað minna fyrir því í þessari ferð, svo það var bara legið meira í sólinni. En auðvitað hélt maður nú samt uppi heiðrinum og kíkti eitthvað út á lífið, þó að næturlífið þarna í Chania, borginni sem við vorum rétt hjá, hefði ekki verið mikið (eða allavega fundum við ekki neina spennó staði). Þar þótti barþjónunum alveg afskaplega skemmtilegt að bjóða okkur drykki (sumum meir en öðrum) og ekki sögðum við nei við því og varð það alveg afskaplega skrautlegt, say no more... Allavega mættu barþjónar hér heima taka upp þetta gjafmildi sem þeir á Krít höfðu.
En svo er bara “sumarið” á Íslandi tekið við í allri sinni dýrð! Blautt og kalt eins og oft áður. Glatað! En læt það ekki á mig fá. Ætla kíkja á tjúttið í kvöld með Hafdísi afmælisskvísu og skála fyrir 25+ afmælinu hennar.
Svo er fullt af fólki búið að eiga afmæli....
11. júlí Katie girl
13. júlí María J.
13. júlí Sindri Snær
14. júlí Hafdís
Til hamingju með afmælin
(Einhvern veginn virðast flestir sem ég þekki eiga afmæli á sama tíma)