mánudagur, júlí 31, 2006

Það líður heldur betur langt á milli pósta hjá manni þessa dagana. Get víst ekki kennt álagi í vinnunni um það, þar sem það er með minnsta móti að gera þessa dagana. Dagarnir eru því miklu lengur að líða en venjulega, og einkennast þeir af frekar löngum matar- og kaffitímum. Er alveg búin að sjá að svona aðgerðarleysi gerir manni ekkert gott, maður verður bara latur af því að hangsa og gera ekki neitt. Minnstu verk, sem maður drífur sig í að klára þegar sem mest er að gera, vaxa manni bara í augum, því þá þarf maður að, standa upp, hreyfa sig, hugsa og fara að gera eitthvað. Ekki alveg nógu gott. En ég sit nú samt ekki í vinnunni allann daginn og geri ekki neitt, svo fólk fari nú ekki að misskilja. Verst er að þegar "leti" vinnudagurinn er búinn þá fer þessi letifílingur ekkert, þetta er bara eitthvað viðloðandi ástand þessa dagana. Vonandi fer þetta að lagast eitthvað.

Ætla að reyna vera eitthvað duglegri að mæta í ræktina, því nú er átakið "Belgurinn burt" skollið á. Ætla alveg að hætta borða sykur, hvítt hveiti, fitu, kolvetni, áfengi og fleira sem telst ekki vera hollt. Ávextir, grænmeti, spelt og vatn verður það eina sem fer inn fyrir mína varir. Svo að eftir nokkra mánuði mun ég kannski líta út eins og súperstjörnurnar í Hollywood, 178 cm og 50 kíló! Haldiði að ég verði ekki flott?
-Held ekki!

Nei, ætla nú ekki að fara missa mig í einhverja vitleysu, held alveg áfram að fá mér mat, hætti því sko ekki. Hristi frekar rassinn bara meira í ræktinni.

Shake shake shake, shake shake shake, shake your booty, shake your booty....