20 ár!
Nú bráðlega verða liðin tuttugu ár síðan ég trítlaði í fyrsta sinn í skólann, alsæl með nýju grænu scout skólatöskuna og í nýju fínu skólafötunum. Tuttugu ár! Það er alveg fáranlegt að hugsa til þess að það séu liðin svo mörg ár, og enn verra að geta sagt eitthvað á þessa leið “já ég man, það var fyrir um tuttugu árum síðan...” Mér finnst ég bara verða hundgömul bara við að skrifa þetta. Úff.... En á þessum árum er nú margt skemmitlegt og sniðugt búið að gerast (sem betur fer, annað væri frekar sorglegt) ég búin að klára grunnskólann, stúdentinn og ná mér í eitt stk. B.Sc. gráðu, svo það er ekki svo slæmt.
En þó það séu að verða liðin 20 ár síðan ég fór fyrst í skóla þá er ég aldeilis ekki hætt að vera í skóla, - ó nei.... Er búin að skrá mig í einn kúrs í HÍ í vetur og fyrsti tíminn er í dag. Verða alveg að viðurkenna að það er smá kvíðahnútur í maganum og hugsunin "hvað í fjandanum er ég að fara gera" búin að poppa upp oftar en einu sinni síðustu daga. En þetta verður bara áskorun og spennandi að sjá hvað verður!
En vinnan kallar!
Later folks