föstudagur, ágúst 04, 2006

Letipúkinn 2006

Verslunarmannahelgin handan við hornið. Hugsa ég verði bara róleg þetta árið og sleppi öllu útihátíða og útileguveseni. Veðurspáin frekar ömurleg þessa helgina svo ég verð ekki köld, blaut og þreytt einhvers staðar út í "óbyggðum". Fæ að sofa á mjúku rúmi með hlýja sæng, en ekki í rökum svefnpoka á harðri tjalddýnu í litlu tjaldi. Samt aldrei að vita nema maður skelli sér á tjúttið hér í bænum ef maður dettur í gírinn.

Væri samt alveg til í að kíkja aðeins til Eyja. Ótrúlegt hvað þessi Þjóðhátið togar alltaf í mann, þó maður sé komin á "gamalsaldurinn". Kíki kannski bara á næsta ári þegar liðin verða 10 ár frá því að ég fór fyrst!!! Sjiii hvað það er að verða langt síðan. Finnst svo stutt síðan ég Hrönn og Kata fórum saman í okkar fyrstu ferð þangað, ældi í Herjólfi alla leiðina til Eyja og var heldur betur ekki í stuði að fara djamma þegar við komum loks þangað. En það rættist nú heldur betur úr þessu öllu saman og var alveg stór skemmtilegt. Þar með fékk ég þjóðhátíðarbakteríuna og virðist ekki alveg læknuð enn!

En eigið bara öll góða helgi! Skemmtið ykkur vel, og passið ykkur á bílunum... :)