mánudagur, september 04, 2006

Dusty JK

Þema síðustu helgar var kartöflur og ryk. Rúllaði í sveitina og eyddi laugar- og sunnudegi út í kartöflugarði í alveg þessu bongó sumarveðri. Get samt ekki alveg sagt að ég hafi notið góða veðursins þar sem ég var umlukin þykku rykskýi upp á vél. Held satt best að segja að ég hafi sjaldan orðið eins drullug, eða öllu heldur rykug og hvað þá hnerrað jafn mikið, úfff... Var alveg voða sæt eftir daginn, með sand eyeliner, ryk augnskugga og moldar meik. Sandur er mjög effektívur skrub og er andlitið á mér VEL sandpússað. Svo þið getið bara ímyndað ykkur hvað ég er orðin sæt núna :)

Svo fékk ég líka bónus, uppskera helgarinnar var hálsbólga og stíflað nef. Frábært alveg hreint. Held ég haldi mig því bara fjarri líkamsræktinni þessa vikuna (eða allavega til að byrja með). Það er ekkert voða töff að vera á hlaupabrettinu með vatnsbrúsan í einni og snýtubréf í annari, með þrútin augu og úfið hár. Held ég haldi mig bara heimavið.