föstudagur, september 01, 2006

Föstudagur til fjár!

Útborgunardagur í dag, ekki leiðinlegt það. Ætla byrja á því að borga einhverja leiðinda reikninga og fara svo í smá verslunarferð og kaupa mér skólaföt fyrir veturinn og eitthvað glingur(verður maður ekki að hafa einhverja afsökun fyrir eyðslunni).

Fyrstu skólavikunni er lokið og líst mér bara vel á þennan kúrs sem ég er í. Er að vísu umvafin verkfræðinemum sem kunna ábyggilega böns í stærðfræði, en hvað um það litli líffræðingurinn í mér fær þá bara að njóta sín þegar kemur að þeim hluta námsins. Og já... ef þið voruð e-ð að velta fyrir ykkur hvaða kúrs þetta væri sem ég fór að forvitnast í, þá heitir þetta heilbrigðistækni (biomedical engineering). Nenni ekki að útlista það hér hvað það er allt um, en fyrir forvitna getið þið skoðað þetta.

Helginni ætla ég svo að eyða í kartöflugörðunum heima. Upptakan er byrjuð svo maður reynir að rétta foreldrunum einhverja hjálparhönd. Ef einhver er áhugasamur um kartöfluupptekt þá er öll aðstoð vel þegin :o)
Farin í garðana... eða hér um bil
Góða helgi