Brrrr....
Skelli nú nokkrum línum inn til svo að þessir "bjútífúl kroppar" í Afganistan verði ekki endalaust "nýjasta" færslan (sem er nú orðin frekar gömul -öhömmm-).
Held barasta að veturinn sé alveg við það að skella á, mælikvarðinn á það er að það þarf orðið að skafa bíllinn á morgnanna. Sjii... hvað mér varð kalt í morgun, ákvörðunin um að fara í pilsi í vinnunna í dag var ekkert svo góð þegar ég stóð út í frostinu að skafa, held mér sé bara enn kalt. Ekki tekur svo betra við í vinnunni því það er ekkert allt of heitt hérna þar sem ég er að vinna í dag, væri bara ekkert hissa ef ég myndi enda kvefuð eftir daginn.
Annars er barasta allt gott að frétta af mér. Kíkti aðeins í bæinn um helgina eftir góða pásu frá bæjarröltinu. Ég og Ninna tókum þá ákvörðun að það þýddi ekkert að vera hangsa heima yfir imbanum öll kvöld svo stefnan var tekin í bæinn. Ákváðum við bara að gera gott úr þessu kvöldi og var farið í leikinn "drykkur á hverjum bar" sem heppnaðist líka svona stórvel. Ef okkur leist ekkert á stemminguna e-m bar sem farið var inná þá var bara tekið skot og drifið sig á næsta bar, en ef stemmingin var góð þá var tekinn betri tími í drykkinn eða jafnvel drykkina :) Mæli alveg með þessum leik til að bjarga glötuðum laugardagskvöldum og það besta var að heilsan var alveg tipp topp á sunnudaginn. Stórskemmtilegt alveg hreint.
Síðan fer að koma að árshátið Spazzanna. Verður hún haldin í Hollandi þetta árið og á partýið að standa yfir í 5 daga, ekki slæmt sko. Hlakka bara orðið til ferðarinnar og verður gott að komast í smá frí frá vinnunni og sötra smá Grolsh úti *sluuuurp*.
En ætli þetta sé ekki komið nóg í bili, skal REYNA að vera duglegri að skrifa, lofa samt engu þá svík ég ekkert :)
Later folks
Jay Kay