Aaaaaa.....
Ekkert varð af sálarballi um helgina. Var í staðinn voða menningarleg og las sérdeilis áhugaverðar vísindagreinar og grúskaði í tölvunni. Mæli sko alveg með því að eyða laugardagskvöldum við þá iðju, ótrúlega uppörvandi!
Aðalmálið þessa vikuna er svo ægilegur hittingur gömlu A-grúppunnar á laugardaginn. Ætla að taka vel á því og tjútta af mér tærnar... eða svona gott sem :) Eyða svo sunnudeginum í afslappelsi og bara hafa það gott.
Svo ákvað ég nú að skella inn einni mynd svona til gamans! Veit einhver hvað þetta er? Sá sem kemur með rétt svar fær óvæntan glaðning...

