mánudagur, nóvember 06, 2006

Endurfundir

Herreguuud hvað ég er lélegur bloggari.
Síðan síðast hefur mér dottið ótalmargt sniðugt til að skrifa hér inn en er aldrei í neinu tölvufæri þegar þessar hugmyndir poppa upp. Svo núna þegar ég ætla segja eitthvað skemmtilegt þá bara *kabúmm* hausinn alveg tómur, ekkert gerist og orðin flækjast bara öll saman í einn hrærigraut. Ælta samt að þrjóskast við og sjá hvort ég geti ekki soðið eitthvað bull saman.
Hvar á ég svo að byrja...
Nóvember mánuður virðist ætla verða nokkurs konar "Reunion" mánuður. Þrír endurfundir á dagskrá í mánuðinum, reyndar einn búinn en two to go.
Reuninon # 1 Fór um helgina og hitti gamla bekkinn minn úr gaggó á Hellu og skemmti mér alveg frábærlega. Langt síðan ég hef hitt margt af krökkunum svo það var meir en nóg til að spjalla um. Tjúttaði svo langt fram undir morgun og djö... var ég þreytt í gær. Kúrði mig bara undir sæng og svaf og fór eitthvað lítið fyrir þeim lærdómi sem var á dagskrá dagsins. Læri bara seinna, er það ekki rétta mottóið.
Reunion # 2 Eftir tvær vikur ætla svo gamla góða "A-borðið" að hittast. Hitti sumar af þessum A-gellum allt of sjaldan, þó að við búum allflestar á sama svæði. Spurning hvort að við verðum ekki að sýna gamla takta með tequila skot, baileys og fleira gotterí ;-) Þetta verður eflaust gaman
Reuninon # 3 Endurfundir Spazzana í Hollandi, bara eftir rétt rúmar tvær vikur. Kannski að ég grípi badminton spaðann með mér svo við getum nú æft sveifluna góðu, haha...

Ég er bara farin að hlakka til :)