fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Hólísjitt

Jahérna hér. Britney Spears bara skilin, ótrúlegt alveg hreint. Hef ekki lengur neina trú á ást og hamingju, fyrst að Britney gat ekki fundið hana afhverju ætti ég að geta það? Hræðilegt alveg!
Nei, segi nú bara svona. Mér gæti ekki staðið meir á sama.

Annars er ég á kafi núna, á kafi í skít, ekki bókstaflega samt. Tvö verkefni hanga yfir hausnum á mér núna. Fyrirlestur í vinnunni og skólaverkefni. Vinnufyrirlesturinn ætti reyndar ekkert að vera neitt mál á bara eftir að lesa smá og skella einhverju áhugaverðu saman sem meikar eitthvað sense. Gæti verið löngu búin að þessu, en það er allt önnur saga sem ég nenni ekki að þreyta ykkur á hér. Seinni “skíturinn” er verkefni í skólanum um e-ð sem ég veit ekki fokk í, og þá er ég ekkert að ýkja neitt þegar ég segist ekkert vita í þessu, believe me. Mér finnst ég bara hafa engann tíma í svona “vitleysu” núna, það virðist bara allt hrúgast niður á sama tíma sama hvað það er. Svo nú er bara að bretta upp ermarnar og vera ósigrandi, eða a.m.k. gera tilraun til þess, skal segja ykkur síðar hver afraksturinn verður.
Svo langar mig á ball. Las það einhvers staðar að Sálin eigi að vera á “Nösu” á laugardaginn, það er nú alltaf gaman að kíkja á eitt sálarball... Verst að fyrirlesturinn bíður þess að vera saminn yfir helgina.
Crap!
Vill einhver skipta!