miðvikudagur, desember 06, 2006

Komin...

...heim úr orlofsferðinni til Hollands.
Kom reyndar heim í síðustu viku, hef bara ekki gefið mér tíma til að skrifa neitt hér inn fyrr. Búið að vera alveg brjálað að gera síðan ég kom, nóg að gera í vinnunni og svo skella saman verkefni í skólanum. Hefði vel þegið auka klukkutíma í sólarhringinn, en sem stendur er það víst ekki boði svo það var bara minna sofið. Næsta mál á dagskrá er svo að læra fyrir próf. Hef lofað sjálfri mér að vera eitthvað skipulagðari við það heldur en í verkefnavinnunni, en það er eitthvað sem segir mér að svo eigi ekki eftir að verða. Hef alveg getað náð að skipuleggja hlutina nokkuð vel svo gerlegir séu en að ég fari eftir því... -já það er allt önnur saga. Hugsa að próflesturinn endi í einhverju brjáluðu stressi, svefnleysi og pirringi. En þetta er nú bara eitt próf svo þetta gengur fljótt yfir.

Holland var svo snilldin ein. Skemmti mér alveg stórkostlega, enda í góðum félagsskap. Var mikið hlegið, spjallað, tjúttað, hjólað, labbað, verslað og bara haft það skemmtilegt. Skrifa smá ferðasögu síðar, hef ekki alveg rétta andann yfir mér núna eða tíma...

kveð að sinni
jk