The last one...
Síðasta færslan á árinu.
Er nú búin að vera fjandi lélegur bloggari á þessu ári. En batnandi mönnum er best að lifa stendur einhvers staðar skrifað svo ég reyni bara að fara eftir því eins og ég mögulega get.
Ætla bara að hafa þessa síðustu færslu í ár stutta. Allt of margar hugsanir að gerjast í höfðinu á mér núna sem geta ekki ratað rétta leið á blað. Búin að vera hugsa nokkuð til baka og einnig til framtíðar síðustu daga. Búin að fara með þessar vangaveltur fram og til baka, afturábak og áfram, inn og út... inn inn út... Kemst svo aldrei að neinni ásættanlegri niðurstöðu. Lífið getur stundum verið snúið. Vesen.
En, gott fólk sem lesið þessa síðu, ég vil óska ykkur gleðilegrar hátíðar. Vona að þið hafið öll átt góð jól og eigið eftir að eiga góð áramót og að nýja árið eigi eftir að taka vel á móti okkur öllum.

Gleðilegt nýtt ár
og takk kærlega
fyrir það gamla!
* Skál *