Ljótleiki
Síðustu daga hefur ljótan verið að hrella mig all illilega.
Trendið þessa vikuna er búið að vera föl húð, baugar, bólur, feitt og úfið hár. Til að toppa þetta er svo hálsbólgu og kvef festivalið mikla í fullum gangi hér á heimilinu þannig að líðanin hefur verið alveg í takt við útlitið, semsagt frekar slæm, ákvað ég því að forða vinnufélögunum frá þessari hræðilegu sjón og hef haldið mig heimafyrir síðustu tvo daga. Þetta er þó allt á uppleið, ljótan hefur minnkað eitthvað aðeins, eða ég stend að minnsta kosti í þeirri trú, og vona ég að geta sýnt mig á meðal fólks á morgun án þess að valda einhverri óþarfa hræðslu hjá því. Svo er líka stefnt á að laga þetta enn meir með aðstoð sérfræðinga á fegrunarsviðinu um helgina, þannig að eftir helgi þá fer væntanlega bjútí JK aftur á stjá.
Þangað til bless.
Kær kveðja
Ugly JK