Orðin eldri...
Ég er komin á rokkaldurinn, eins og ein góð kallaði það.
Jú, ég er víst orðin jafngömul og Janis Joplin, Jimi Hendrix, Jim Morrison, Kurt Cobain og James Dean voru þegar þau dóu. The big 27 -sjitt!
Samt ætla ég nú að gera mitt besta og reyna feta ekki í fótspor þeirra. Fyrir það fyrsta er ég náttúrulega ekki fræg rokkstjarna og mun að öllum líkindum ekki verða það úr þessu því lítið hefur borið á einhverjum sönghæfileikunum. Svo dópa ég ekki, hass, heróín og svoleiðis stuff er ekki alveg á listanum yfir nauðsynlegustu hluti í mínu lífi, reyndar drekk ég en samt af skynsemi (eða það finnst mér allavega). Eitt á ég þó alveg pottþétt sameiginlegt með þessu fólki og það er að nafnið mitt byrjar líka á J, vona bara að það sé ekki einhver krúsjal þáttur í þessu. Svo nú er bara að krossa fingurnar og vona að ég endi ekki eins og þau.
Afmælisdagurinn var bara fínn. Eyddi honum í sveitinni, svona til að byrja með, og skellti mér svo í afmælisveislu um kvöldið, ekki þó mína eigin því Ásta spazzi var að fagna "tuttuguogeitthvað" ára afmælinu sínu. Skemmti mér bara þræl vel og ekki skemmdi nú hvítvínið sem var í boði, fór svo í fyrsta sinn (held ég) á ball með bjórbandinu í Pakkhúsinu. Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.
Vil ég bara þakka allar kveðjurnar á afmælisdaginn og öllum þeim sem samfögnuðu með því að sprengja flugelda -allt til heiðurs mér, ótrúlegt hvað það vita margir að ég átti afmæli :)
ha ha ha ha
kv.
JK - rocks on...