Eurovision
Íslenska júróvisjón í kvöld. Ætla að kíkja á keppnina með Glimmergellunni, mesta júrónördinu sem ég þekki. Ég get nú ekki kallast júrónörd en ætla nú bara að skella mér og upplifa stemmingjuna í kringum þetta allt saman, alltaf gaman að prófa gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. Þó ég sé ekki júrónörd er ég nú samt alveg búin að fylgjast með þessum lögum sem eru í keppninni og finnst þau bara svona ágæt, náttúrulega miiiiis góð, en einhverra hluta vegna veit ég þó ekkert hvernig lagið hans Eika Hauks er, fólki virðist almennt finnast það fínt svo það hlýtur að vera okey. Lagið hans Dr. Gunna er líka fínt gleðipopp, algjört heilaklístur, enda heitir það heilinn minn.
En ætla fara koma mér heim úr vinnunni svo ég geti nú farið að gera mig reddí fyrir kvöldið. Get ekki farið að klikka á smáatriðunum. Þarf náttúrulega að blása hárið, lakka neglurnar, setja upp glimmer augnhárin og skella mér í glansgallann. Þá verð ég good to go.
Gúd bæ
euro - JK