Síðan síðast...
Úff... allt of langt síðan ég skellti einhverju hér inn. Þarf nú að fara bæta mig og blogga kannski oftar en tvisvar í mánuði eins og ég hef gert.
Ljótan er allavega farin, eða að minnsta kosti í þeirri mynd sem hún var í um daginn. Er bara að berjast við "bad hairday" í dag, en það er ekkert sem er ekki hægt að laga, svo beauty JK er gott sem komin aftur ;)
Lífið gengur svo bara sinn vanagang, vinna, sofa og éta. Afrekaði það nú reyndar í vikunni að koma mér í ræktina í fyrsta sinn á þessu ári, líkamsræktarkortið var farið að safna aðeins of miklu ryki í þessari pásu minni.... köllum hana bara gott jólafrí :) Svo nú er stríðið við belginn hafið og vona bara að ég hafi betur í þessari lotu þó ég hugsi að ég eigi eftir að þurfa ansi mörg spörk í rassinn í þessari atlögu, en sjáum bara til.
Ég þarf reyndar líka fleiri spörk í rassinn í tengslum við margt annað heldur en ræktina. Er í einum kúrs í HÍ í vetur og já.... segjum bara að það sé ekkert voðalega mikið búið að lesa, sem er ekki gott. Þetta er kannski ekki sá léttasti kúrs til að velja en skemmtilegur engu að síður svo það bara að koma sér í gírinn. Önnur spörk sem ég þarf tengjast ýmsum öðrum málum. Mig vantar bara einhvern drifkraft að koma mér í hlutina og drífa þá af. Í staðinn hugsa ég málin fram og til baka og ekkert gerist. Ekki alveg nógu gott!
Svo held ég að það sé kominn tími á að ljúka ákveðnu sambandi sem hefur staðið í nokkur ár. Er að hugsa, (ath hugsa) um að fara losa mig við minn elskulega "Skranser". Loka ákvörðun hefur samt ekki verið tekin en þó fer að koma að því... Svo kannski farið þið bara að sjá mig "með" öðrum áður en þið vitið.... (Yeah right!)
Nóg í bili
JK